Heimasíða Önnu Kristínar og Móu

Velkomin(n) á bloggið okkar

15.10.2008 22:24:59 / móa

Miðvikudagur..

Halló halló allir saman!

Er fólk ekki í stuði í dag? Ég er bara hress!:haha:Svo sem lítið að frétta af mér! 
Steinunn bauð okkur stúlkunum í sushi gerð heima hjá sér um daginn. Það var voða gaman að læra að gera þetta! Þetta er rosalega góður matur og hollur líka!
Hérna koma nokkrar myndir frá kvöldinu góða:


Veisluborðið reddí...


Kræsingar...
Mæsa, Hanna Borg, Anna, ég og Helga...

Annars bauð ég ,,gömlu" vinkonunum mínum í matarboð á fimmtudaginn í síðustu viku. Það var voða gaman að hitta stelpurnar og spjalla.
Þórunn spilaði fyrir okkur á flygilinn þar sem hún er að fara í stigspróf. Ótrúlegt hvað hún spilar vel! Það eru sannkölluð forréttindi að fá að hlusta á hana! 
Kvöldið var vel heppnað í alla staði. En því miður tók á engar myndir! Ég tek þær bara næst:lol:

Annars var pabbi að koma heim frá Genf. Hann var voða ánægður með ferðina og tók helling af myndum! Ég skelli kannski einhverjum þeirra inn á næstunni!
Ég bakaði köku sem ég sá í Mogganum um daginn fyrir pabba í tilefni heimkomunnar.
Skelli hérna inn mynd af kökunni til að monta mig! 

Berjabomban góða!....ótrúlega góð þó ég segi sjálf frá! ;)

Annars erum við Ásgeir farin að hlakka voða mikið til að fara út og heimsækja mömmu! Þetta verður rosalega gaman! Það verður nice að tjilla með henni og skoða Genf.


Jæja..fleira var það ekki í bili!


Adios mis amigos!



Móa



» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2008 16:19:45 / móa

Sól úti, sól inni, sól í hjarta, sól í sinni!

Góðan daginn allir saman!

Sól úti, 
sól inni, 
sól í hjarta,
sól í sinni. 
Sól, bara sól!

Þetta er svolítið góð vísa að muna núna þegar það er kalt og rigningarlegt úti. Amma var alltaf að syngja þetta fyrir mig þegar ég var lítil.:d 
Maður getur nú reyndar ekki kvartað svo mikið, það er frábært að læra í vondu veðri því þá langar mann amk ekki út í blíðuna!;) haha...

Ég er bara hress að vanda. Skólinn er kominn á fullt og nóg að gera! Ég er að byrja í Boot Camp aftur í rólegheitum eftir meiðslin. Það er gaman að vera komin af stað aftur! 

Vikan var ósköp venjuleg. Hitti Særún í hádegismat á þriðjudaginn. Alltaf gaman að spjalla við Hunterinn 8)
Á miðvikudagskvöldið skelltum við Birkir okkur út að borða á Eldsmiðjunni. Mér finnst Eldsmiðjan gera bestu pizzur á landinu, ógeðslega góðar !!:haha: 
Og í gær fórum við Ásgeir bróðir á Pinapple Express í Háskólabíó. Ég var búin að heyra góða hluti um myndina en hún var mun betri en ég hefði nokkurn tíma þorað að vona! Ógeðslega fyndin mynd og alveg stórskemmtileg! Mæli með henni!! :haha:

Hallgrímur litli varð fimm ára í gær. Við Ásgeir hringdum í hann til þess að heyra í honum hljóðið. Það var gaman að heyra hann segja frá því að á sunnudaginn ætlar hann að halda afmælisboð og þá fær hann Hulk afmælisköku. Hann er svo mikið krútt! 
Ég sakna allra litlu frænda minna mjög mikið!:( Eyrún segir að þau Kári og Þór komi sennilega heim næstu jól svo það er tilhlökkunarefni! Mamma fór í heimsókn til þeirra í London í síðustu viku. Þór er víst byrjaður að tala! Mér finnst svo stutt síðan hann fæddist! ;) Mamma tók einhverjar myndir sem ég reyni að skella hérna inn næst þegar ég hitti hana (gleymdum að setja myndirnar inn í heimatölvuna!).
Hari segir að þau komi ekki næst í heimsókn fyrr en þar næstu jól! En kannski maður skelli sér til Iowa næsta sumar að skoða nýjasta fjölskyldumeðliminn sem er von á í janúar! :) kannski.....;).

Annars er helgin óráðin, afmæli í kvöld og svo ætla ég að gerast svo fræg að henda í gulrótarköku á sunnudagseftirmiðdag! Sjáum til hvernig það gengur, hef ekki bakað neitt í ca. 5 ár!:)


Jæja..nóg komið af masi!


Góða helgi!


kveðja


Móa





» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 08:21:07 / móa

Sunnudagsslór...

Góðan og gleðilegan sunnudag.

Ég sit hérna á Þjóðarbókhlöðunni að glósa um áhættuskiptareglur. Enginn betri tími en núna til að blogga! haha...!:haha:

Fór á kokteil síðasta föstudag í Logos og þaðan fórum við stelpurnar út að borða á Thorvaldssen. Maturinn var góður, fyrir utan það að greyjið Helga fékk GLERBROT í matnum sínum!!! Og þjónustan var frekar léleg. Við sáum bara ekki þjóninn okkar eftir að hún tók pöntunina okkar! Mis...to say the least!
En það var samt gaman að fara svona saman út að borða stelpurnar, alveg 13 saman. Kósý að spjalla aðeins í rólegheitunum. Frá Thorvaldsen var ferðinni heitið á Apótekið sem verður skemmtistaður laganema í vetur. Þar hitti ég Birki og Tryggva sem voru að koma úr vísó EITUR hressir! Það var gjörsamlega priceless að fá stuðboltana í teitið ;) Frá Apótekinu var síðan haldið á Vegamót og þaðan var barasta farið heim!

Mamma kom í heimsókn á föstudaginn og flaug aftur út til Genfar í nótt. Það var virkilega gaman að sjá hana. Hún sýndi okkur myndir af íbúðinni sinni í Genf og ég er barasta farin að hlakka mjög mikið til að kíkja til hennar í október með Ásgeiri bróður. Í hádeginu í gær fengum við afa og Elsu og Sólveigu í gourmet hádegismat og um kvöldið var svo fjölskylduboð. 
 
Í dag á elsti bróðir minn, Haraldur afmæli. Til hamingju með afmælið Hari minn! Vonandi áttu góðan dag í dag!:d 

Jæja... held að það sé best að ég snúi mér aftur að ,,skemmtuninni"!!

adios mis amigos!!

kveðja

Móa




» 0 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 08:21:10 / móa

Fleiri myndir!

Góðan dag!

Hérna koma fleiri myndir á myndasíðu Móu nr. 2: 

  • Afmæli Salvarar á Hressó.
  • Boot camp djamm og Kaffibarinn 9.8.2008
  • Busun Ásgeirs í MR 2008.

Ók, bæ! ;)

kveðja

Móa


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 20:23:15 / móa

Hvar á ég að byrja...

Halló halló krakkar mínir!

Ég verð að viðurkenna að ég hef verið léleg í blogginu í sumar. Mér til varnar hefur veðrið verið frábært og eftir vinnu langar mann barasta beint í sund eða vera úti, amk langar mig ekki til að blogga í sól og sumaryl! hahaha...

Jæja! Ég hef haft nóg fyrir stafni í sumar. Ég hóf sumarið á því að fara til London í heimsókn til Kára, Eyrúnar og Þórs. Það var yndislegt að koma til þeirra og slappa aðeins af eftir prófin. Ég fékk að vera með í afmælisveislunni hans Þórs og það var mjög gaman. Við fórum í dýragarðinn, hann fékk pakkana sína og afmælissöngurinn var sunginn!:lol:
Við Eyrún röltum í nokkrar búðir og svo var barasta slappað af!

Síðan skrapp ég til Tenerife í júní með Birki og fjölskyldu. Þetta var gjörsamlega yndisleg ferð! Það er ofboðslega fallegt þarna og veðráttan er algerlega perfect! Við héngum í sólbaði, kíktum á ströndina og fórum í vatnsrennibrautargarð svo eitthvað sé nefnt.

Annars er ég að vinna á lögfræðisviði á Lyfjastofnun í sumar og líkar mjög vel. Svo er ég að byrja aftur í Boot Camp eftir að ég tognaði frekar illa á ökklanum í byrjun sumars. Nýjasta hobbíið mitt er svo að synda á morgnana fyrir vinnu. Það er bara alveg ágætt, þegar ég nenni! :)

Þar fyrir utan hef ég einfaldlega verið að vinna í sumar, hitta ,,gamla" vini, hanga í sundi, mæta í nokkur afmælisboð, skellt mér tvisvar á Þingvelli, fór í útilegu á Vaglaskóg og djamma.

Síðustu helgi skelltum við Bikir okkur til Bolungarvíkur til þess að hitta vini og ættmenni. Þessi ferð var gjörsamlega æðisleg! Við keyrðum snemma af stað á föstudaginn og sluppum því við alla umferð. Þegar þangað var komið var veðrið eins og það gerist best: sól og hiti! :lol:
Við sóluðum okkur, fórum í sund, vorum boðin í tvö yndisleg matarboð, sungum okkur hás með ættingjum mínum, tókum þátt í mýrarbolta, rérum á bát út á vatn til þess að veiða, og djömmuðum tvívegis á hinum víðfræga Edinborg á Ísafirði! Ég trúi því varla hvað þetta var yndisleg verslunarmananhelgi! Ég hef alltaf verið í bænum hingað til og þetta var skemmtileg tilbreyting. Ég held að við skellum okkur aftur að ári!:lol:

Síðan tókum við Þórunn upp á því fyrir stuttu að byrja að æfa saman. Þ.e.a.s. ég syng og hún spilar á píanó. Það er æðislegt að byrja aftur að syngja! Við erum að æfa djass skotin lög og það er mjög gaman. Við erum að reyna að hittast 1-2 í viku og hver veit nema við sláum upp ,,mini-tónleikum" í lok sumars og leyfum vinum og ættingjum að heyra hvað við erum að bralla ;)

Ég var að henda inn gífurlegu magni af myndum, endilega tjékkið á þeim:
  • Bolungarvík og mýrarbolti á Ísafirði
  • Páll Óskar með Eurovision ball á Nasa
  • Útilega á Vaglaskógi með Joe og Darra
  • Þór Kárason í pössun sumar 2008
  • Iowa, maí 2008
  • Þingvallaferð fjölskyldunnar
  • Svipmyndir úr lífi mínu
  • Afríkuferð mömmu í vetur
  • Fjölskyldumyndir, jól 2007
  • Tenerife myndir, sumar 2008

Jæja, það var ekki meira í bili! Lofa að blogga meira þegar veðrið verður verra! :)


Adios mis amigos!



kveðja


Móa


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 16:56:04 / móa

Þriðjudagur

Halló halló allir saman!

Hvað segir fólkið gott í dag? Allir í stuði og svona?
Jæja. Þá er ég loksins búin í prófum og komin í sumarfrí. Næsta mál á dagskrá er að skella sér í heimsókn til Eyrúnar og Kára í London á fimmtudaginn og kíkja í eins árs afmæli hjá Þór litla ;). Það verður yndislegt að komast aðeins til útlanda áður og taka því rólega fram í næstu viku:).
Annars er mest lítið að frétta af okkur. Ásgeir fór til Þýskalands með þýskubekknum sínum í gær og hefur það gott í æðislegu veðri. Það er víst 25 stiga hiti og þau eru að hjóla um Berlín í góða veðrinu og versla inn á milli ;).
Ég og Joe erum byrjaðar að reyna að plana útileiguna góðu!  Það er vonandi að við fáum jafn gott veður og síðast!!:D Spurning hvert verður haldið í þetta skiptið?! ;)
Annars á pabbi afmæli í dag (13.maí). Til hamingju með daginn pabbi minn!

Jæja meira var það ekki í bili....

adios amigos

kveðja

Móa


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 23:14:20 / móa

Hversdagslífið

Halló halló allir saman!

Er fólk ekki í stuði, svona í miðjum prófum?!
Kellan er bara farin að læra heima, gafst upp á Hlöðunni. 
Við Ásgeir brói höfum það mjög fínt hérna heima, hann er að fara í samræmdu prófin og ég á eftir eitt próf, þ.e.a.s. Stjórnsýslurétt II sem er eftir viku í dag. Við systkynin tökum saman tarnir í lestri og förum út að skokka þegar gott veður gefst :)
Afi hélt upp á níræðisafmælið sitt með glæsibrag á sunnudaginn. Mjög vel heppnað og mikið af fólki sá sér fært að koma. Afi er eldhress og hélt m.a.s. ræðu!
Á fimmtudaginn síðasta var svo boð hjá Guðmundi og co. því Auðbjörg hefði orðið sextug 24. apríl. Mikið af fólki og sumarlegt boð með glæsilegum veitingum. Gaman að hitta alla fjölskylduna aftur, Edda var mætt á svæðið ásamt sinni fjölskyldu, Vala og Simon og Adda mættu öll en þau búa úti í Hollandi um þessar mundir. 

Annars læt ég mig dreyma um Tenerife ferðina góðu, hún heldur í manni lífinu á þessum síðustu prófdropum!:D Það verður fantastico að komast í sólina! újee...

Ég sakna litlu frænda minna hryllilega mikið (og auðvitað bræðra minna og eiginkvenna þeirra). 
Ég sá að www.thehallgrimssons.blogspot.com eru búin að setja inn nýjar myndir. Þegar ég sé þær finnst mér eins og ég sé að missa af svo miklu af lífi strákanna! Þeir eru svo flottir og duglegir og orðnir svo stórir!! Ég þarf endilega að reyna að drífa mig í heimsókn bráðlega til Kára eða Hara eða beggja!;)

Jæja...meira var það ekki í bili!


kveðja


Móa 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 08:21:36 / móa

Sunnudagur

Halló halló alle sammen!

Ný færsla komin inn, allt að verða vitlaust! Það er barasta komin sunnudagur!
Mest megnis lítið að frétta af mér. Fer að komast í upplestrarfrí og hlakka í rauninni bara mikið til að klára þessa önn! :)
Þegar fólk heyrir að maður sé í lögfræði segir það vanalega: ók..er það ekki rosalegur lestur, er það ekki roslegur utanbókarlærdómur? Ertu ekki bara að læra lögin??
Alltaf hef ég svarað: nei þetta er alls ekki þannig nám!
En , þegar ég hef kynnst eignarrétti í allri sinni dýrð hef ég komist að því að eignarréttur er algerlega þannig fag: maður lærir lögin! Amk á það við hluta hans, þ.e.a.s. um þinglýsingar og veðrétt sem er by far með því leiðinlegra sem ég hef lært á minni skólagöngu (og þá er ég að telja með hljóðfræði í 4 bekk í MR!!).
Jafnvel þótt þjóðlendur, nábýlisréttur og forkaupsréttur séu skemmtileg viðfangsefni í eignarrétti þá er námskeiðið í heild einfaldlega ekki að gera sig!
Það er í fyrsta lagi alveg ógeðslega illa og leiðinlega skipulagt sem gerir það að verkum að það er mjög erfitt að setja sig inn í það af krafti. Í öðru lagi er námsefnið út um allar trissur og amk helmingur þess er ljósrit! Hitt fagið sem ég er í er stjórnsýsluréttur II sem er bara skemmtilegur.
Ég er búin í prófum 13.maí og er hæstánægð með það. Fínn upplestrartími og alles gut!

Aldrei hef ég hlakkað jafn mikið til að komast út í sumarið og fara að vinna og stunda Boot Camp af krafti! Þetta verður æðislegt sumar! Ég er að fara til Tenerife í 2 vikur og komin með lögfræðitengda vinnu:). Í sumar vonast ég svo til þess að við Birkir, Jóhanna og Darri skellum okkur aftur í útileigu;). Getur ekki klikkað!:D 
Önnur plön eru að djamma og kannski kíkja til Kára, Eyrúnar og Þór í London.



Jæja...er farin í fermingu hjá Nadiu frænku!

Later kiddos!

adios

kveðja

Móa




» 18 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 09:26:58 / móa

Að gantast í Vísindavefnum....

Er hin besta skemmtun! Mæli eindregið með því!:D.....

Góðan daginn Birkir. 
Þakka þér fyrir spurninguna ,,Er mögulegt að flá mann lifandi, og ef svo er, hvernig geri ég það?" sem þú sendir á Vísindavefinn. Við sjáum okkur því miður ekki fært að svara henni þar sem við teljum hana falla utan við verksvið okkar. 


Kveðjur 
Ristjórn Vísindavefsins. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 15:46:16 / móa

Myndir, myndir og fleiri myndir!!

Halló halló!

Já það er alveg hreint ótrúlegt hvað undirrituð er dugleg að taka margar myndir þótt í augnablikinu eigi hún ekki virka myndavél!

Hérna koma einar 140 myndir úr afmælinu hans Birkis (4.janúar).

Tjékkið á þeim:

http://picasaweb.google.com/moahall86

 

Endilega kommentið! ;) 

kveðja

 

Móa


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 21:55:09 / móa

Biðin langa á enda!

Halló halló krakkar mínir!

Á föstudaginn skellti ég mér á kokteil í Glitni og síðan á Orovison. Ég ætla nú ekki að vera langorð: það var ógeðslega gaman!!:D Ég tók að vanda helling af myndum sem skoða má á myndasíðu Móu nr. 2 eða hér:

http://picasaweb.google.com/moahall86

 

 

Enjoy!

 

kveðja

 

Móa


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 21:38:01 / móa

Árið 2007

Halló halló krakkar mínir!

Þá er komið að því, árið 2007 verður gert upp hér og nú! úff, jæja...hérna kemur þetta þá;

Janúar: Birkir verður tvítugur og mamma árinu eldri. Ég varð þeirra ánægju aðnjótandi að fá að syngja lag sem Marteinn Hunger samdi inn á upptöku. Mjög skemmtileg reynsla! :D Annars leið janúar bara eins og venjulega: hægt-hægt-hægt!;)

Febrúar: skóli-skóli-skóli og ábyggilega hellingur af skemmtilegum hlutum sem ég er fyrir löngu búin að gleyma!;)

Mars: það sem stóð án efa upp úr í mars var að ég hélt upp á 21 árs afmælið mitt og bauð vinum mínum til veislu! Það var rosalega gaman! Nokkrar myndir hérna;

Mix bollan góða;)

Sólveig og Kalli sæt saman...

Anna Finnboga, Helga og Gunnar Steinn...

ég og Joe sem hjálpaði mér heilmikið með undirbúninginn!:*

Elli, Eysi og Joe..

Apríl: páskar í kósýlegheitum og vorpróf! vúhú!;).

Maí: pabbi árinu á afmæli. Nýr fjölskyldumeðlimur kemur í heiminn, Þór Kárason; hér eru nokkrar myndir af krúttinu;

 

Þór nýfæddur..

Ásgeir með Þór í fyrstu heimsókninni hans til Íslands í júní...

Hjá ömmu sinni...

Í garðinum í London með ömmu sinni og mömmu...

Við (mamma, pabbi, Ásgeir og ég) skelltum okkur í heimsókn til Hara bróðir og co. í Iowa BNA. Þetta var frábær ferð í alla staði og yndislegt að hitta fjölskylduna og tjilla í sólinni! Vonast til þess að geta farið aftur þangað sem allra-allra fyrst!:)

Kári og Hallgrímur sætir..

Fjölskyldan borðar morgunmatinn á pallinum..

Amma Ragnheiður og Kári spila draugpúslið saman..

Júní: í byrjun júní útskrifaðist Birkir úr MR. Athöfnin sjálf var miklu skemmtilegri en okkar og veislan var vel heppnuð í alla staði. Eftir veisluna skelltum við okkur í partý til bekkjabróður Birkis ásamt Önnu Kristínu. Við skelltum okkur svo niður í bæ og dönsuðum fram á rauða nótt= vel heppnað kvöld í alla staði!!:D

Kappinn sáttur...

Bjössi og Birkir á jubilantaballinu..

strákarnir...

Lawladies sprækar að vanda..

Júlí: sú stóra breyting varð á lífi mínu að ég byrjaði í Boot camp. Það var erfitt að byrja en núna get ég ekki án þess verið! Við Birkir og Anna Kristín vorum mjög dugleg að skella okkur á djammið saman og Gunnar Steinn, Helga og Jóhanna lætu ekki sitt eftir liggja heldur; ónei...

Mohitokvöldið okkar Joe góða sem er enn í fersku minni!

Afmælið hennar Helgu...

Afmælisbarnið!

Anna Kristín komin í djammgírinn!

Eitt það skemmtilegasta sem ég gerði á árinu var að skella mér í útileigu með Jóhönnu, Darra og Birki á Arnarstapa Snæfellsnesi. Við fengum æðislegt veður og eyddum helginni saman í göngum, sundi, tjilli og grilluðum þess á milli. Þetta var ótrúlega skemmtileg ferð og ég vona að við skellum okkur nú bara aftur næsta sumar?;) Nokkrar myndir þaðan; (stal þeim af myndasíðu Joe!)..

Við Birkir í gönguferð..

Joe og Darri á góðri stund..

í gönguferðinni góðu...

kríurnar voru ekki að fíla okkur,..vægast sagt!

Joe og Darri flexa músklerne..

Ágúst: dreif mig að klára Evrópuréttinn sem ég ákvað að sleppa fyrir jól á fyrsta ári og kláraði þar með fyrsta árið í lögfræðinni.

Amma mín Halldóra Einarsdóttir féll frá í ágúst. Bræður mínir Kári og Hari flugu heim til þess að koma í jarðaförina. Hennar er og verður sárt saknað enda var hún alveg einstök manneskja.

Seinni hlutann í ágúst drifum við Birkir okkur svo til London í viku til þess að tjilla aðeins og versla eitthvað pínku fyrir skólann;). Við fengum að gista hjá Kára bróður. Það var alveg frábær ferð þótt við hefðum e.t.v. mátt vera aaaaaðeins heppnari með veður, en við gátum nú sagt okkur að það yrði rigning, enda er þetta nú London!

gerviapi og Bikir í dýragarðinum í London..

Birkir og Kári borða á XO...

September: skólinn byrjar á ný á fullu. Skellti mér í einn kokteil eða tvo;) ...

hófarnir (??) hressar í Landsbankanum! ;)

stuð á lögfræðipíunum!

Nonni, Kiddi og ég tökum ,,hamstradansinn"!

mesta fjörið í lagadeild!

Jens hress í Ölgerðinni..

Ragnhildur og Erla..

ég og Ása hressar á leið á ræðukeppni Orator

Október: skellti mér m.a. á reunion hjá gamla Való-árgángnum mínum, þ.e. Való 2002. Rosa gaman að hitta alla aftur. Sumir alveg gjörbreyttir og sumir alveg eins! Við fórum út að borða saman á undan stelpurnar og kvöldið var á allan hátt mjög vel heppnað!:D

Ívar, Helga, Bergur og Pálína..

Elín Birna og Baldur stíga trylltan dans!

Joe og ég...

stelpurnar hressar...

Nóvember: leið eins og nóvember gerir yfirleitt!

Desember: fyrstu þrjár vikurnar fóru í próftörn og ég kláraði prófin 21.desember. 22.desember komu Kári, Eyrún og Þór til landsins. Jólin voru yndisleg!! Eftir að hafa opnað pakkana komu Kári og co. og Ásgeir frændi og co með afa og við átum möndlugrautinn góða. Þór (afi Haraldur) vann möndluna og pabbi!:D Jess!!! Við vorum með jólaboð í pabba fjölskyldu á jóladag og á þann 28.desember komu Hari og co.heim frá Iowa!:D Við áttum saman frábærar stundir fjölskyldan og vorum öll saman á gamlárskvöld:). Þetta var yndislegt frí! Því miður á ég engar myndir af fjölskyldunni því batteríið á myndavélinni minni er týnt! En það kemur bara næst þá!;)

Ein frétt að lokum hérna; Birkir hélt  upp á 21.árs afmælið sitt á föstudaginn síðasta á Barnum. Partýið var vel heppnað og næstum allir sem voru boðnir létu sjá sig. Hann fékk frábærar gjafir en þeirra á meðal var til dæmis flugeldar frá Tryggva (sem var hundeltur af dyravörðum því þá má ekki vera með svoleiðis þarna inni) Lúxor geisladisk frá Gunnari Steini og Ragga og frábært heimagert kort, helling af áfengi, glös, bol og mix disk frá Joe og Darra og fleira og fleira! Ég var á myndavélinni hans Birkis og tók einar 150 myndir sem ég skelli inn bráðlega!

Og fleira var það nú ekki í bili krakkar mínir!! Til hamingju ef þú nenntir að  lesa þetta!;) Endilega kommentið!;)

kveðja

Móa

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 12:27:30 / móa

Gleðileg jól allir saman!

Halló halló halló!

Hvað segir fólkið? Núna eru jólin loksins komin og það hvít jól!!:D Við lawladies óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Takk innilega fyrir allt liðið! Hafið það yndislegt yfir hátíðarnar!

 

 

 

 

kveðja

 

Lawladies (Anna Kristín og Móa)


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 00:16:30 / móa

Úffff

 

Úff maður jólageðveikin byrjuð á háu stigi í kringlunni þessa dagana, opið til 10 og fólk alveg að missa það......aðeins of langur dagur að vinna frá 10 til 10!!

En annars kemur vinnan manni svoldið í jólaskapið, hef svo sem ekkert betra að gera, manni drepleiðist bara að hanga heima og gera ekki neitt!! 

En annars er próflokadjamm hjá lagadeildinni á morgun á Hverfis, þekki marga þyrsta laganema sem bíða í örvæntingu........ekki alveg að meika það að hafa ekki séð bjórinn í 5 vikur straight, hvað er það???

Mottóið mitt í dag er lífið er of stutt til að halda í fortíðina og eitthvað slæmt sem hefur gerst, halda ótrauður áfram inn í framtíðina og gera hana betri.....

 En það er sko skylda að ef þið eruð á röltinu í kringlunni þá verðið þig sko að koma við í Tékk Kristal og heilsa upp á mig....... það er must :haha:

Luv,

Annie K


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 14:19:15 / móa

Jólasnjór

 

Já sæll

Allt erfiði tekur enda sem betur fer, prófin búin og langþráð jólafrí byrjað............ og þá meina ég það þegar ég segi langþráð, búin að vera ströng prófatörn eins og alltaf.

Það sem tekur við næstu daga er vinna, kósýheit, jólatónlist og bara jólastemmarinn yfir höfuð.

Bjöggi í kvöld sem ætti að koma manni í gírinn, held þetta verða geggjað jólatónleikar ;)

Svo er ekki amalegt að jólasnjórinn sé mættur á svæðið ooohhh þetta gerir mánuðinn svo enn jólalegri og bjartari maður var alveg að detta í þunglyndið þarna á tímabili sko, úff....

Annars hefur dagurinn í dag allavegana sem komið er verið tekinn mjög rólega sem svona tilbreyting og maður getur slappað af án þess að vera með samviskubit yfir þvi að maður ætti í raun að vera gera allt annað eins og t.d læra.

En jæja ætla ekki að hafa þetta mikið lengra, reyni að vera dugleg að henda inn stuttum færslum og svona um atburði og upplifun jólanna frá mínu bæjarhorni

Ég óska hjónakornunum þeim Móu og Birki góðs gengis í prófunum þeirra, þið massið þetta eins og venjuleg........ hlakka til að hitta ykkur þegar þið klárið..... love you darlings

Over and out,
Annie K


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 27321
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Leitarbox

Klukkan